08 mars 2006

Jæja, nú tek ég mig á!!

Ég veit ég er alls ekki dugleg að blogga, ég hef heldur ekkert mikið að segja! og þó ég hefði það.. þá skoðar þetta enginn.. nema hannes.. en það er bara því ég píni hann til þess.. hehe ;) lítið að frétta af mér að vanda.. er búin að vera að vinna á fullu og er sátt með nýju vinnuna :) er orðin dökkhærð og er bara mjög sátt, skemmtileg tilbreyting ;) ooog ég er að fara út næstu helgi, til danmerkur.. jeeeijj :D það verður stuð! ;).. en jæja.. yfir í annað.. Hannes ástin mín á afmæli á mánudaginn og ég er ekki ennþá búin að kaupa gjöf :/ ég bara veit ekki hvað ég á að gefa honum.. vonum að hann lesi þetta ekki.. er nebbla að spá í að gefa honum bara handklæði?? hvernig líst ykkur á það.... :) ég var í tölvuprófi í morgun og gekk bara svona skítsæmilega.. það var alveg þónokkuð sem ég gat ekki gert.. vonum bara að þetta komi ágætlega út.. fæ vonandi svona 6 -7 :) þá verð ég sátt... það sem ég er búin að vera að gera síðustu vikurnar... fsu ball þarsíðustu helgi.. GEÐVEIKT gaman :D árshátíð hjá hannesi síðustu helgi á hótel örk... tölum ekkert meira um það ;) haha :D Húsið, Lambasel 26, er alltaf að braggast ;) fer nú að skella inn myndum af þessu ;) hehe :D en jæja.. ég hef bara EKKERT meira að segja.. enda er ég bara búin að segja ansi mikið! ;) eeeendilega kvittiði...
kv. eva.. ;):*

21 febrúar 2006

Bloggí blogg :)

Halló.. ég get lofað ykkur að ég er margoft búin að reyna að blogga uppá síðkastið en alltaf þegar ég ætla að birta það þá er eitthvað að þessu helvíti og það er ekki hægt :/
Annars er eitthvað voðalega lítið að frétta af mér sko... eins og er er ég bara veik :( er ekki búin að vera almennilega veik í ár og aldir.. en nú held ég að ég sé komin með þetta allt saman :( HATA ÞETTA!!! Ég ætla rétt að vona að ég lagist af því að ég er að fara í skólann á morgun, til læknis og að vinna.. mér þætti ömurlegt að missa af vinnunni.. ég meina ég er nýbyrjuð þarna.. það yrði ÖMURLEGT!!! :/ en jæja... þá segi ég ekki meira í bili.. ætla að vista á meðan ég get...

Kv. Eva Rós :/

14 janúar 2006

Nemó eftir minna enn mánuð :D

Jæja.. það er nú ekki mikið af frétta af mér.. nema bara að ég er búin að segja upp hjá Hagkaup :) en það er nú ekkert merkilegt.. málið var bara að ég var á ALLT OF lágum launum!!.. þið fyrirgefið hvað ég hef bloggað lítið uppá síðkastið.. er bara búin að vera að gera eitthvað svo mikið og eini tíminn sem er laus er á meðan ég er í skólanum.. en það er búið að loka fyrir blogspot þar.. þannig ég get ekkert bloggað!

En já aðal málefni dagsins í dag er að Nemó verður 2.Feb og ég er ekkert smá spennt :D Dagurinn verður einhvern veginn svona:

Morgunpartý hjá Guðlaugu (bakarísmatur) :D

Nemó Leikritið í Austurbæ :D

Hádegismatur á KFC :D

Skautar í Egilshöllinni!! ;)

Fara svo heim í sturtu og gera sig fínann og svona :)

Matur á Horninu.. pizza og pastahlaðborð! :)

Fyrirpartý heima hjá Tomma! :D

Ball.. ekki vitað hvar og ekki vitað hverjir spila ;)

Þetta er svona u.þ.b. hvernig dagurinn verður... svo verður kannski eikka eftirpartý ef einhver finnst til að halda það :D.. það er nebbla ekki skóli daginn eftir og því tilvalið að nýta sér nóttina til að djamma ;) Þetta verður alveg rááándýr dagur.. rútan kostar svo 55000 sem er 2000 kall á mann ef allir mæta.. svo er það allt fyrr nefnt sem þarf að borga fyrir.. og áfengi.. og ný föt.. og bara FULLT.. en ég hugsa að dagurinn verði alveg þess virði :)

En þá er komið fínt í dag.. er að fara að horfa á einhverja leiðinlega mynd með Hannesi :/ blogga meira bráðum!
Kv. Eva Rós :)

05 janúar 2006

2005 - 2006

Hæhæ.. þá er bara gamla árið búið og nýtt ár byrjað :D.. ég ætla að segja í grófum dráttum hvað gerðist á gamla árinu.. sem var mjööög langt ár bara.. en þó gott :) og svo ætla ég að segja ykkur áramótaheitin mín :)

Gamla árið:

1. Mamma vann í þvílíku happdrætti og fékk lóð í Seljahverfinu.. :/
2. Ég kláraði grunnskólann með fínustu einkunnir :D
3. Fór að vinna á Dvalarheimilinu ás.. sem var bara helvíti gaman :D ég og alma unnum þar saman já gamla og geðveika fólkinu og ég verð bara að viðurkenna að hingað til hef ég bara ekki verið í skemmtilegri vinnu ;)
4. Ég komst inn í Verzlunarskóla Íslands og hóf þar nám um haustið.
5. Ég og Hannes fórum til Mallorca í viku rétt áður en ég byrjaði í skólanum.. það er nú saga að segja frá þeirri ferð... hún allavega heppnaðist ekki alveg eins vel og búist var við ;).. en við verðum vonandi bara heppnari næst! :)
6. Flutti til pabba.. við skulum ekkert segja neitt meira um þann rúma mánuð sem ég bjó þar.. hann var allavega ekki nógu góður ;)
7. Óðinn hætti í F.Su og byrjaði ekkert aftur í skóla það sem eftir var af árinu...
8. Mamma og familían fluttu í Ferjubakkann og ég til þeirra :) þar ætlum við að búa þangað til að nýja húsið verður tilbúið í vor..

9. Óðinn flutti að heiman.. hann býr nú í vesturbænum..
10. Ég kláraði fyrstu önnina mína í Verzló með fínum einkunnum og er bara mjög sátt með skólann, námið, bekkinn og félagslífið..

Yfir heildina litið var þetta mjög fínt ár :) það versta við árið var að flytja í bæinn!! mér finnst alveg hræðilega leiðinlegt að búa ekki lengur í Hveragerði!! :/

Áramótaheit fyrir árið 2006:

1. Vera alveg æææðisleg kærasta ;)
2. Standa mig með glæsibrag í skólanum, gera alltaf heima o.þ.h.
3. Koma fram við aðra eins og ég vil að þeir komi fram við mig.
4. Hjálpa meira til heima fyrir.
5. Léttast!
6. Vera dugleg að safna eins miklum pening og ég mögulega get með því að vinna o.fl.
7. Vera í meira sambandi við bestu vinkonur mínar! Kamillu, Svandísi og Helenu Dögg! :/
8. Gera allt sem Gísli tannsi segir mér að gera :$
9. Ekki vera það full að ég sé ælandi o.þ.h.
10. Gera mitt besta í öllu! :D

Jæja.. þá er bara að vona að ég nái að halda þessi heit.. :) Hafiði ekki trú á mér? ;)

Ég er farin.. á að vera að læra :/:/ ég sem ætla alltaf að gera það!!! :(

Bæbæ.. blogga bráðlega...
kv. eva rós!

16 desember 2005

Prófin búin og jólafrííííí!! :D:D

Hæhæ :D;)

Ég bloggaði hérna alveg rosa stórt í gær.. ég LOFA! en svo þegar ég ætlaði að vista það.. þá var eikka að og það náðist ekki samband eða eikka álíka :/.. eeeen allavega :D nú eru öll prófin búin :D mér gekk ekkert allt of vel en það skiptir þó ekki öllu máli :D hehe ;) í gææær var svo jólaballið og það var bara geðveikt gaman :D.. það var fyrirpartý heima hjá Höllu ;).. þar pissaði Sveinn í glas og ég ætlaði að reyna að láta Eyþór drekka það en það gekk víst ekki.. svo rakst eikker í glasið og það fór piss á mig :D hahaha!! og þá lamaðist ég og "missti" pissið á gólfið :/ það var EKKI fyndið!! ;) en jááá.. svo nottla var BARA gaman á ballinu!! ég meina skímó var að spila :D:D:D en jááá.. svo er ég bara að slappa af núna :D er bara að fara í kringluna á eftir og eikka chill.. svo á morgun.. þá er ég að fara á annað skímó ball á selfossi :D og svo er eftirpartý uppí bústað.. VÁÁÁÁÁ hvað ég hlakka geggjað til að hitta alla... þetta verður magnað :D en jæææja.. ætli maður fari ekki að gera eitthvað.. :) ein pæling.. af hverju geta lítil og heimsk börn lært svona fljótt að tala? ég meina.. mér finnst alveg fáranlegt að við séum miklu fljótari að ná þessu þegar við erum lítil!! og þau verða nottla bara að læra margt af þessu með því að horfa á okkur... eins og mörg sagnorð!!... að nenna t.d.. það væri ekkert hægt að útskýra það fyrir barninu :/ en jæja.. þetta er komið gott ;)... ég heyri í ykkur bara :D

kv. eva rós :D;)

11 desember 2005

Hola..


Hæhæ.. mér gengur svooo illa að læra fyrir bókfærsu!! :| Ég byrjaði á að gera verkefni 28 aftur.. og fékk allt rétt.. svo gerði ég verkefni 26.. og fékk nokkrar villur.. en skyldi þær þó allar.. svo var ég að gera verkefni 24 núna... og ég er með ansi margar villur þar og ég skil bara ekkert í þeim!!! :/ hvað á ég eiginlega að gera?? það væri nottla bara asnalegt ef ég fengi eikka lágt í bókfærslu miðað við hvað mér hefur gengið vel í síðustu skyndiprófum!! en jæja.. ég hef nú ekkert mikið að segja meira en þetta sko.. voðalega lítið að frétta eikka :S..
-ef EINHVER sem kann mikið í bókfærslu er að lesa þetta blogg kvöldið 10.12.05.. kíktu þá í heimsókn til mín.. Ferjubakki 4 :) býð uppá heitar vöfflur á móti ;)..

kv. eva rós :D

02 desember 2005

Kitlikitl :)

Loksins! Það er komið að því að ég var kitluð :D og sú sem gerði það var engin önnur en Svandís :D en jæja... hérna kemur þetta þá ;)

Hlutir sem ég ætla að gera áður en ég dey:
1. Giftast og eignast börn með mínum fullkomna eiginmanni! :)
2. Fara í teygjustökk!
3. Ferðast um allan heim :)
4. Læra Spænsku!!!
5. Mennta mig vel og vera þvílíkt rík :)

Hlutir sem ég get ekki gert:
1. Lifað án yndislegu hundanna minna :)
2. Hætt að elska einhvern sem ég elska alltof mikið! :D
3. Lært heima :/
4. Hætt að vera ótrúlega æðisleg manneskja ;) haha :D
5. Staðist að leggja mig þegar ég er þreytt ;P

Hlutir sem ég get gert:
1. Verið skemmtileg :D
2. Verið leiðinleg og vond :(
3. Verið alveg roooosalega óheppin!!!
4. Grátið... ójá!
5. Elskað jólin alveg rosa mikið :D

Það sem heillar mig við hitt kynið:
1. Augun auðvitað :)
2. Líkaminn ;P
3. Persónuleikinn og húmor!
4. Tennurnar!! ÞOLI EKKI stráka með ljótar tennur!!
5. ooog rassinn :)

Frægir menn sem heilla mig:
1. Auddi :D
2. Chad Michael Murray
3. Auddi :)
4. uhh.. Brad Pitt?
5. Sko.. ég veit ekkert um marga fræga sem eru eikka sætir :/.. þannig að ég verð bara að segja Auddi aftur :/

Orð sem ég segji oft:
1. hæhæ ;)
2. hvað segist? ;)
3. æj.. hættu :/
4. ertu ekki að grínast???
5. bæbæ ;)

Hlutir sem ég sé akkúrat núna:
1. sjónvarp :)
2. nammi ;)
3. tölvu...
4. sófa :)
5. Litlu Sólina mína sofandi ;*

Mannsveskjur sem ég ætla að kitla:
1. Hannes :D
2. Fanney!
3. Kamilla ;)
4. Valdimar :)
5. og Úlla bara líka!

Jæææja.. þá er bara komið gott í dag.. :) ég er bara heima að borða saltstangir og Piratos... ein.. svona er þetta.. ;)
En allavega... bæbæ.. kv. eva rós ;*